Á fyrri helmingi ársins, eða til loka júní, hafa rúmlega 943 þúsund farþegar farið um Keflavíkurvöllinn. Er þetta tæplega 9% fjölgun á milli ára. gera má ráð fyrir að nú hafi tæplega ein milljón ferðamanna komið til landsins.

Í nýliðnum júnímánuði fóru rúmlega 257 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll sem er 7,2% fjölgun á milli ára. Þetta kemur fram í tölum frá flugvellinum.