Áætlaður rekstrarkostnaður á hvern nemanda í grunnskólum sem reknir eru af sveitarfélögum er 1.514.722 krónur samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands .

Meðalrekstrarkostnaður á hvern nemanda í grunnskólum árið 2013 reyndist vera 1.453.145 krónur og var vegin meðaltalsbreyting rekstrarkostnaðar frá árinu 2013 til september 2014 metin 4,2%.