Í gær voru sex styrkir veittir úr nýjum umhverfissjóði Fríhafnarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þórólfur Árnason, stjórnarformaður Fríhafnarinnar sem setti athöfnina og sagði gestum frá tilurð og markmiðum sjóðsins og Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar afhenti styrkina, að því er segir í frétt á vef Fríhafnarinnar. Alls nema þeir styrkir sem veittir voru í gær rétt rúmri einni og hálfri milljón króna. Fjölmargir sóttu um í sjóðinn, en ákveðið var að veita sex aðilum styrk í fjölbreytt uppbyggingar- og hreinsunar verkefni á mismunandi sviðum. Sjóðurinn var stofnaður í fyrra.

Áhugahópurinn Heiðafélagið hlaut styrk til gróðursetningar á um 1000 furum í mólendi á Miðnesheiðinni í nágrenni flugstöðvarinnar. Heiðafélagið leggur til mótframlag sem felst í gróðursetningu á trjánum.

Ungmennafélag Njarðvíkur (UMFN) fékk styrk til gróðursetningu trjáa við keppnis- og æfingasvæði deildarinnar í Njarðvík.

Golfklúbbur Suðurnesja mun vinna að uppgræðslu á svæðum í kringum Hólmsvöll í Leiru og hlaut til þess styrk.

Fyrir rúmum 20 árum gróðursetti Lionsklúbbur Njarðvíkur plöntur í svokallaða Paradís í Ytri Njarðvík. 2012 fékk Lionsklúbburinn þennan reit til umsjónar með það að markmiði að byggja svæðið enn frekar upp, til almenningsnota og yndisauka. Lionsklúbburinn fær styrk til þess að fjölga plöntum á svæðinu, sem og að koma upp bekkjum og borðum svo nýting svæðisins geti orðið betri og fjölbreyttari.

Skógræktar- og landgræðslufélagið Skógfell hyggst koma upp aðstöðu til þess að taka á móti leik- og grunnskólabörnum úr Vogum sem koma til gróðursetningar á svæði Háabjalla og hlaut styrk til verkefnisins.

Blái herinn eru félagasamtök sem stofnuð voru árið 1998. Meðlimir bláa hersins vinna að ýmsum samfélagsverkefnum, s.s. hreinsunarverkefnum í náttúrunni, umhverfisfræðslu í leikskólum og svo mætti lengi telja. Frá upphafi hefur Blái herinn unnið hátt í 50.000 klukkustundir í sjálfboðavinnu í yfir 100 verkefnum á landsvísu.