Ein valdamesta kona heims kemur i næstu viku. Það er Indra Nooyi, forstjóri Pepsi. Samkvæmt upplýsingum frá Ölgerðinni kemur Nooyi hingað til lands vegna 100 ára afmælis Ölgerðarinnar sem er í ár.

Svanhildur Sigurðardóttir, samfélags- og samskiptastjóri Ölgerðarinnar, segir að hún komi hingað einnig vegna einstaklega góðra tengsla Ölgerðarinnar við Pepsi.

Nooyi kemur 1. nóvember.