Einar Benediktsson hefur vikið sæti úr stjórn Olís en hann gegnir þó áfram starfi framkvæmdastjóra félagsins. Karsten M. Olesen hefur einnig vikið sæti úr stjórninni en þau Baldvin Þorsteinsson og Heiðrún Jónsdóttir eru nýir stjórnarmenn.

Heiðrún starfaði áður fyrir Eimskip og situr í stjórnum nokkurra fyrirtækja, þar á meðal Norðlenska, Reiknistofu Bankanna og Samtaka verslunar og þjónustu. Baldvin er stjórnarformaður Jarðborana.