Einar Bárðarson, athafna- og umboðsmaður, var á meðal 22 nemenda sem útskrifuðust úr MBA námi við Háskólann í Reykjavík fyrir stuttu. Einar flutti ræðu útskriftarnema en MBA nám er tveggja ára viðskiptanám á meistarastigi þar sem nemendur fá kennslu og þjálfun í m.a. reikningshaldi, stefnumótun og mannauðsstjórnun.