Einar Snorri Sigurjónsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Verðbréfaskráningar Íslands. Eftirmaður hans hefur ekki verið ráðinn. Magnús Kristinn Ásgeirsson, lögfræðingur Kauphallarinnar, mun tímabundið gegna stöðunni þar til ráðið verður í stöðuna.

Einar Snorri hefur unnið hjá Verðbréfaskráningu Íslands um árabil.

Fram kemur í tilkynningu frá Kauphöllinni að stefnt sé að því að ráða í stöðu Einars Snorra innan skamms.