Einar Hannesson, sparisjóðsstjóri Spkef, var einróma kosinn stjórnarformaður Sambands íslenskra sparisjóða (SÍPS) á aðalfundi sambandsins í gær. Í tilkynningu kemur fram að um leið hafi stjórnarmönnum verið fækkað úr 5 í 3. Segir að það sé í samræmi við áætlanir um að draga úr starfsemi sambandsins og lækka kostnað.

Aðrir í stjórn eru Ólafur Elísson og Ari Teitsson.