Einar Karl Haraldsson tók í dag til starfa sem upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Þar segir að Kristján Kristjánsson hafi látið af störfum í gær sem upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins „þegar tímabundinni ráðningu hans lauk," segir í tilkynningunni.

Í henni segir að Einar Karl hafi starfað sem sérfræðingur í ráðuneytinu í sumar og leyst af aðstoðarmann ráðherra.

„Hann starfaði áður sem aðstoðarmaður iðnaðarráðherra sl. tvö ár og á að baki langan feril við ritstjórn, störf fyrir stjórnmálaflokka, fyrir Norðurlandaráð og sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi í almannatengslum. Einar Karl lagði stund á stjórnmálafræði í Toulouse í Frakklandi og í Stokkhólmi á námsárum sínum og síðar á markaðs- og útflutningsfræði hjá EHÍ. Einar Karl er ráðinn til sex mánaða," segir í tilkynningunni.