Einar Þorsteinsson hefur verið ráðinn forstjóri Alcoa Fjarðaáls og tekur formlega við stöðunni þann 1. desember næstkomandi. Tor Arne Berg, sem sinnt hefur starfinu síðastliðin tvö ár, snýr aftur til Noregs í nýtt starf hjá Alcoa en hann mun vera Einari innan handar út dembermánuð. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Einar hefur fram til þessa starfað hjá Elkem og þar hefur hann gegnt margvíslegum stöðum víða um heim. Starfsstöðvar hans hafa verið á Íslandi, í Frakklandi og í Kína og störfin fjölbreytt, þeirra á meðal forstjóri, ráðgjafi, yfirmaður ferlaþróunar og umdæmisstjóri í Asíu. Áður en Einar tók til starfa hjá Elkem vann hann hjá nokkrum fyrirtækjum í stjórnunarstöðum.

Einar er menntaður vélvirki, vélaverkfræðingur og með meistaragráðu í iðnaðar- og vélaverkfræði frá Álaborgar háskóla. Sérsvið hans eru viðskipta- og stefnumótun, markaðsseting, ferla- og rekstrarstýring og hagræðing í aðfangakeðju.

Eiginkona Einars er Edda Elísabet Kjerúlf, þau eiga fjögur börn og fimm barnabörn. Einar mun flytja frá Reykjavík til Austurlands eftir að hann tekur við starfinu.