N1 hefur ráðið Einar Sigurstein Bergþórsson í stöðu forstöðumanns orkusviðs N1 en hann hefur störf þann 1. febrúar næstkomandi, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Einar kemur til N1 frá Landsvirkjun þar sem hann starfaði sem forstöðumaður viðskiptastýringar. Þar áður sinnti hann verkefnastjórnun hjá Equinor (áður Statoil) í Noregi yfir fimm ára tímabil.

Einar tekur við starfinu af Magnúsi Júlíussyni sem var nýlega kynntur sem aðstoðarmaður Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnar- og nýsköpunarráðherra.

Sjá einnig: Íslensk Orkumiðlun verður N1 rafmagn

Einar er með meistaragráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands þar sem hann lagði sérstaka áherslu á jarðvarmavirkjanir. Hann er einnig með próf í verðbréfamiðlun. Einar er í sambúð með Írisi Björk Kristjánsdóttur og saman eiga þau þrjú börn.

Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1:

„Það er mikill fengur að fá Einar til starfa þar sem hann býr yfir umfangsmikilli reynslu og þekkingu á sviði orkumála. Hann mun leiða og þróa orkusvið N1 sem er að verða eitt okkar fjölmennasta svið samhliða aukinni áherslu N1 á umhverfisvæna orkugjafa. Við hlökkum til að hefja þá vegferð með Einar innanborðs og bjóðum hann velkominn til starfa.“

Einar Sigursteinn Bergþórsson, verðandi forstöðumaður orkusviðs N1:

„Ég tek við orkusviði N1 fullur tilhlökkunar enda eru mikil tækifæri fólgin í hinum sístækkandi raforkumarkaði hér á landi. Það verður spennandi að fá að leiða og taka þátt í sókn N1 á þann markað þar sem félagið leggur nú aukið vægi á sölu raforku til heimila og fyrirtækja í takt við markmið N1 um orkuskipti.“