Einar Þórarinsson og Jón Brynjar Ólafsson hafa verið ráðnir framkvæmdastjórar hjá Advania. Breytingar hafa verið gerðar á skipulagi fyrirtækisins sem miða að því að efla félagið enn frekar sem þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni. Advania greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

Þeir Einar og Jón Brynjar hafa báðir starfað hjá Advania um nokkurra ára skeið og hafa víðtæka reynslu hvor á sínu sviði.

Einar leiðir nú nýtt svið þjónustu- og markaðsmála sem hefur það hlutverk að samþætta víðtæka þjónustu félagsins og tryggja jákvæða upplifun viðskiptavina. Einar hefur starfað hjá Advania í átta ár og hefur 20 ára stjórnunarreynslu úr upplýsingatæknigeiranum. Hann gegndi áður starfi forstöðumanns þjónustuupplifunar Advania. Einar er tölvunarfræðingur að mennt með viðskiptafræði sem aukagrein frá Háskólanum í Reykjavík.

Jón Brynjar tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Hann hefur starfað hjá Advania í tæp fjögur ár og gegndi áður starfi forstöðumanns fjármálasviðs fyrirtækisins. Hann hefur leitt tekju- og kostnaðarskráningu Advania, uppgjörsvinnu ásamt innri og ytri greiningarvinnu. Jón Brynjar er með meistaragráðu í fjármálum og stefnumótandi stjórnun frá Copenhagen Business School.

„Þær breytingar sem við erum að gera á skipulagi félagsins hafa það að markmiði að gera okkur enn beittari í sókn út á markaðinn og betur í stakk búin til að mæta kröfum okkar viðskiptavina um faglega og árangursríka ráðgjöf og þjónustu á sviði upplýsingatækni. Í nútíma rekstrarumhverfi þurfa fyrirtæki og stofnanir á að halda öflugum samstarfsaðila í upplýsingatækni og það er okkar einlægi ásetningur að vera sá aðili," segir Ægir Már Þórisson forstjóri Advania á Íslandi.

Framkvæmdastjórn Advania skipa þau Ægir Már Þórisson forstjóri, Anna Björk Bjarnadóttir, Kristinn Eiríksson, Sigrún Ámundadóttir, Sigurður Sæberg Þorsteinsson, Einar Þórarinsson og Jón Brynjar Ólafsson.