Eins og VB.is greindi frá hafa aldrei fleiri ferðast um Keflavíkurflugvöll og í júlí og hafa WOW air og Icelandair slegið farþegamet. Hins vegar hafa farmiðar til nokkurra áfangastaða verið óvenju ódýrir í sumar og reglulega á tilboði. Því gæti verið að sumar borgir í leiðarkerfi Icelandair og WOW air munu falla niður.

Túristi.is greinir frá því að óvissa gæti verið með framtíð áfangastaðarins Sankti Pétursborgar hjá Icelandair. Mikið úrval var af ódýrum farmiðum til borgarinnar en vegna verkfalla starfsmanna Icelandair varð ekkert úr flugi þangað í upphafi sumars. Haldið var þó flugáætlun óbreyttri í júlí og ágúst. Guðjón Arngrímsson, talsmaður Icelandair, segir í samtali við Túrista að of snemmt sé að segja til með framhaldið á þessu flugi á næsta ári.

WOW air bauð tilboðsverð sem voru mun lægri í upphafi sumars en á sama tíma í fyrra. Reglulega buðust farmiðar á undir tíu þúsund krónur. Félagið auglýsti farmiða á 9990 krónur til Dusseldorf og Stuttgart í júlí og í byrjun ágúst bauð WOW air aftur farmiða til þýsku borganna, auk Vilníus og Amsterdam, á 7.990 krónur.

Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, segir í samtali við Túrist að tilboðin séu þó ekki til marks um að sala á flugsætum til þessara borga hafi verið dræm. Áfangastaðirnir fjórir hafi gengið mjög vel í sumar, ástæða tilboðsins hafi einfaldlega verið vegna markmiðs WOW air að fylla vélarnar í lok sumars.

Í ár hefur til að mynda dregið mikið úr fjölgun rússneskra ferðamanna hér á landi sem er vísbending um að eftirspurn eftir Íslandsflugi frá Sankti Pétursborg sé að dala. Þrjú stærstu flugfélög Þjóðverja fljúa hingað á sumrin og hafa íslensku flugfélögin stundum þurft að bíða lægri hlut í samkeppni. Icelandair hætti flugi til Berlínar fyrir nokkrum árum og WOW air gafst upp á flugi til Kölnar. Einnig er spurning hvort íslensku flugfélögin geti att kappi við spænska lággjaldaflugfélagið Vueling á heimavelli í Barcelona. WOW air hefur reglulega boðið upp á tilboð til spænsku borgarinnar síðustu vikur og sömu sögu er að segja um Lyon í Frakklandi. Mun koma í ljós á næstunni þegar sumardagskrár Icelandair og WOW air fyrir árið 2015 verða birtar hvort nýir áfangastaðir bætist við og aðrir verði kvaddir.