Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna heilbrigðisþjónustu sem einstaklingar leita eftir hjá sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmönnum sem vinna samkvæmt samningi nam rúmlega 3.600 milljónir króna á árinu 2005 og hefur aukist um 910 milljónir króna frá árinu 1998 á föstu verði miðað við almennan þjónustulið neysluverðsvísitölu. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins.

Samkvæmt upplýsingum fjármálaráðuneytisins svarar þetta til tæprar 5% meðalaukningar á ári yfir tímabilið í heild. Árleg meðalfjölgun landsmanna var hins vegar um 1,2% að meðaltali. Árleg meðalaukning miðað við fast verð var mun meiri fyrri hluta tímabilsins, frá 1998 til 2001, eða um 8% en um 1,8% á árunum 2002 til 2005.

Bent er á að um 60% af greiðsluþátttöku sjúkratryggingar séu greiðslur til sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem í stórum dráttum fá greitt fyrir einstök læknisverk sem metin eru til eininga en árið 2005 var einingarverð 214 króna.

"Það ár voru um 2,2 milljarðar króna greiddar fyrir læknisverk sem unnin voru á starfsstofum sjálfstætt starfandi sérgreinalækna. Á bak við þá fjárhæð eru rúmlega 13 milljón lækniseiningar og rúmlega 384 þúsund komur til læknis. Hver koma er því að meðaltali 34 einingar og kostar 7.276 krónur en þar af greiðir sjúklingur nálægt 30% eða 2.180 krónur," segir í vefritinu.

Aðrar greiðslur sjúkratrygginga vegna lækniskostnaðar eru vegna þjónustu sjálfstætt starfandi heimilislækna og sérstakra vottorða og nema greiðslur til þeirra tæpum 10% af heild. Þá nema kaup á myndgreiningum hjá fyrirtækjum á því sviði svo og kaup á ýmis konar rannsóknarvinnu á rannsóknarstofum tæpum 30% af heild.