Á 2. ársfjórðungi ársins jókst landsframleiðslan um 3,7% frá sama ársfjórðungi fyrra árs, án árstíðarleiðréttingar. Ef horft er til 1. ársfjórðungs þessa árs jókst landsframleiðslan um 2,1%, árstíðarleiðrétt.

Ef horft er á fyrstu sex mánuði ársins, jókst landsframleiðslan um 4,1% að raungildi ef borið er saman við sama tímabil ársins 2015. Þjóðarútgjöld, sem er samtala neyslu og fjárfestingar, jókst á sama tíma um 9,4%.

Einkaneyslan jókst um 7,7%, samneysla um 0,6% og fjárfesting um 29,5%. Innflutningur jókst töluvert meira en innflutningur, eða um 16,2% í stað 5,3%. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .