Einkaneysla virðist hafa verið í töluverðum vexti í marsmánuði ef marka má nýbirtar tölur um greiðslukortaveltu á vef Seðlabankans, að sögn greiningardeildar Glitnis.

Heildarvelta kreditkorta í síðasta mánuði nam 18,8 milljörðum króna, og er það 16% aukning að raungildi ef miðað er við sama mánuð í fyrra.

Hins vegar dróst veltan saman að raungildi frá febrúarmánuði um 7,8%, en nokkur árstíðasveifla er í kortanotkun og því takmarkað hægt að ráða í mánaðarbreytingar, segir greiningardeildin.

Innlend kreditkorta notkun í mars jókst að raungildi um tæplega 15% frá sama mánuði í fyrra og nam alls tæpum 16 milljörðum króna.

Erlendis var heildarnotkun kreditkorta í síðasta mánuði upp á tæpa 3 milljarða króna, sem samsvarar rúmlega 23% raunaukningu milli ára. Það hefur hægt á aukningu notkunar erlendis, en næstu 12 mánuði á undan var meðalaukning milli ára tæp 40% að raunvirði.

Kreditkortanotkun er gagnleg vísbending um þróun einkaneyslu, en sterk fylgni er milli kreditkortanotkunar og einkaneyslu, segir greiningardeildin.