Einkaneysla jókst hraðar en kaupmáttur á síðasta ári í fyrsta sinn í áratug segir Greining Íslandsbanka vísbendingar vera um. Þetta sé því í fyrsta sinn frá hinu mikla neysluári 2007 eins og bankinn orðar það sem vöxtur einkaneyslu fari umtalsvert fram úr kaupmáttarvextinum.

Þó líti ekki út fyrir að heimilin séu að auka skuldsetta neyslu í viðlíka mæli og raunin var á fyrsta áratug aldarinnar að mati bankans sem áætlar að einkaneyslan hafi aukist um 8,0% á síðasta ári.

Laun í landinu hækkuðu að jafnaði um 0,2% í desember síðastliðnum samkvæmt nýbirtri launavísitölu Hagstofunnar. Yfir árið 2017 í heild hækkaði launavísitalan um 6,9%, samanborið við 9,1% hækkun árið 2016.

Framhlaðnir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði sem gerðir voru um miðjan áratuginn og veruleg kjarasamningshækkun stórra hópa opinberra starfsmanna á árinu 2016 skýra þennan mun að stærstum hluta segir í markaðspunkti Greiningar Íslandsbanka .

Kaupmátturinn lækkaði í desember

Þar sem vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,5% í desember lækkaði vísitala kaupmáttar launa um 0,1% í mánuðinum. Á nýliðnu ári jókst kaupmáttur launa hins vegar um 4,8% á þennan kvarða. Það er myndarleg kaupmáttaraukning í sögulegu jafnt sem alþjóðlegu samhengi.

Má þar nefna að OECD áætlar að kaupmáttur launa hafi að jafnaði aukist um 0,4% á ári í aðildarlöndum stofnunarinnar árin 2014-2016, og gerir ráð fyrir 0,6% kaupmáttarvexti í OECD-löndum árin 2017-2019.

Talsvert hefur dregið úr kaupmáttaraukningunni hérlendis síðustu ársfjórðunga. Á sama tíma hefur mikill gangur verið í einkaneyslu. Á árinu 2017 í heild jókst kaupmáttur launa að jafnaði um 5,1% eftir 9,5% kaupmáttaraukningu árið 2016, sem er raunar hraðasta aukning kaupmáttar hér á landi svo langt aftur sem tölur Hagstofunnar ná.

Hafa þarf í huga að einkaneysla er heildar mælikvarði fyrir hagkerfið allt, en kaupmáttur launa endurspeglar meðaltalsþróun fyrir hvern einstakling á vinnumarkaði. Eðlilegt er því að einkaneyslan vaxi hraðar þegar landsmönnum fjölgar, eins og raunin hefur verið hér á landi. Á móti má nefna að Samtök atvinnulífsins hafa bent á að útreikningsaðferð Hagstofunnar á launavísitölu ofmeti hækkun launa í landinu um u.þ.b. 1% á ári.