Harry Shearer, einn aðal talsetjari hjá The Simpsons er hættur. Shearer talsetti meðal annars Ned Flander, Principal Skinner, Mr. Burns, auk margra annarra persóna í þáttunum. Þetta staðfestir hann á Twitter.

James L. Brooks, framleiðandi þáttanna, sagði á Twitter að þátturinn myndi halda áfram án Shearer: "Show will go on, Harry will not be part of it, wish him the best."

Shearer sagði að ástæða þess að hann sé að hætta sé sú að hann vilji frelsi til að vinna að öðru. En talið er að um samninga ágreining hafi verið að ræða.

Missirinn af Shearer verður mikill og óvíst er hvað verður um persónurnar sem hann talsetti í 26 seríur. Meðal þekktustu persónna Shearer eru: Ned Flanders, Mr. Burns, Smithers, Principal Skinner, Reverend Lovejoy, Otto, Kent Brockman, Dr. Hibbert og Lenny Leonard.