Jan Mølhave einn af framkvæmdastjórum danska fjárfestingafélagsins Keops hefur tilkynnt að hann sé að hætta hjá félaginu. Baugur er einn stærsti hluthafinn í félaginu.

Jan Mølhave hefur verið framkvæmdastjóri hjá Keops Investment í meira en 10 ár. Hann hefur verið einn fjögurra framkvæmdastjóra sem sitja í framkvæmdastjórn félagsins. Hann hyggst starfa sjálfstætt og hefur þegar hætt störfum hjá félaginu.