Jang Song-thaek hefur verið tekinn af lífi. Ríkisfréttastöðin KCNA í Norður Kóreu kallaði Song-thaek föðurlandssvikara í frétt sinni um aftökuna. Frá þessu greinir Business Insider.

Song-thaek var einn helsti ráðgjafi Kim Jong-il í áratugi. Hann var einnig ráðgjafi  núverandi einræðisherra landsins, Kim Jong-un.

Völd Song-thaek eru sögð hafa verið sérstaklega mikil í lok valdatíðar Jong-il og fyrstu ár valdatíma Jong-un.

Jang féll í ónáð fyrir skömmu og var þurrkaður út af opinberum ljósmyndum.