Hafnarfjarðarbær hefur auglýst 45 lóðir fyrir um 90 íbúðir til úthlutunar í nýju og vistvænu íbúðahverfi í Skarðshlíð. Svæðið liggur sunnan og vestan Ásfjalls og er skjólsælt svæði umvafið mikilli náttúrufegurð segir í fréttatilkynningu frá bænum. Í skipulagi og hönnun er rík áhersla lögð á heildræna sýn, vistvænt skipulag, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði.

Öll aðstaða verður til fyrirmyndar í hverfinu og til marks um það var fyrsta skóflustunga að Skarðshlíðarskóla tekin í haust sem leið og standa framkvæmdir yfir við hann núna.

Skólinn mun samanstanda af húsnæði fyrir 2ja hliðstæðu grunnskóla um 6.800 m2 , tónlistarskóla um 480 m2 , leikskóla um 760 m2 og íþróttahús um 870 m2 , samtals um 8.910 m2 .

Byggingarnar verða hannaðar samkvæmt hugmyndafræði algildrar hönnunar. Í því felst að hanna góðar lausnir með jafnrétti og vellíðan alls fólks í fyrir rúmi.

Einstaklingar í forgangi á 15 einbýlis- og parhúsalóðum

Um er að ræða fjórar einbýlishúslóðir og ellefu parhúsalóðir sem eru lausar til úthlutunar. Einstaklingar ganga fyrir við úthlutun á lóðunum og hægt er að skoða og sækja um rafrænt á "Mínar síður" á vef Hafnarfjarðarbæjar.

Umsókn um lóð verður tekin fyrir á bæjarráðsfundi þegar öll fylgigögn eru komin. Séu tvær eða fleiri umsóknir um sömu lóð á bæjarráðsfundi er dregið á milli umsækjanda.

Þá er óskað eftir tilboðum lögaðila í 25 tvíbýlishúsalóðir, 4 raðhúsalóðir og 3 fjölskylduhúsalóðir. Búið er að marka lágmarksverð í lóðirnar og teljast tilboð undir lágmarksverði ógild. Hægt er að skoða og sækja um rafrænt á "Mínar síður" á vef Hafnarfjarðarbæjar. Tilboð í lóð verður tekið fyrir á bæjarráðsfundi þegar öll fylgigögn eru komin.