Beitir NK kastaði á síldarmiðunum austur af landinu um hádegi í gær. Dregið var í um 40 mínútur og reyndist aflinn vera 1.320 tonn.

Síldarvinnslan greinir frá . Sturla Þórðarson skipstjóri segir að þarna hafi verið mikla síld að sjá.

„Þetta var einum of mikið af því góða hjá okkur. Við viljum helst ekki fá svona mikinn afla í holi. Við viljum frekar smærri skammta. Þetta fékkst á Héraðsflóanum um 16 mílur út af Glettingi. Það voru 32 mílur frá veiðistaðnum í Norðfjarðarhöfn. Þetta er fínasta síld og meðalþyngdin er 385 grömm. Síldin fer auðvitað öll til manneldisvinnslu. Það var bara eitt skip að veiðum þarna auk okkar; Aðalsteinn Jónsson SU. Nú eru hins vegar fjórir bátar á leiðinni af makrílmiðunum í Síldarsmugunni á síldarmiðin. Það eru einungis fáir bátar eftir í Smugunni og enn er leitað að makríl en árangurinn hefur verið lítill upp á síðkastið,“ segir Sturla í spjalli við vefskrifara Síldarvinnslunnar.