Neytendastofa kannaði nýlega verðmerkingar og merkingar á vefsíðum golfverslana á Höfuðborgarsvæðinu, en niðurstaða könnunar Neytendastofu var birt í dag. Skoðað var hjá Golfbrautin, Golfbúðin, Golfskálinn, Hole in One og Örninn Golfverslun.

Einungis ein golfverslun var með allar merkingar í lagi, en það var verslunin Golfbrautin. Tvær verslanir voru ekki með verðmerkingar í lagi auk þess sem nokkuð var um ómerktar vörur, en þær verslanir voru Örninn Golfverslun og Golfbúðin.

Það vantaði verðmerkingar á vefsíðurnar hjá Golfbúðinni, Golfskálanum, Hole in One og Erninum Golfverslun Á vefsíðu Arnarins Golfverslunar vantaði einnig upplýsingar um fyrirtækið og sömu sögu er að segja um vefsíðu Golfbúðarinnar og Golfskálans.

Neytendastofa hefur nýlega aukið eftirlit sitt með vefsíðum fyrirtækja. Neytendur eiga rétt á að sjá við hvern þeir versla, þeir eiga að geta séð nafn fyrirtækisins, heimilisfang þar sem fyrirtækið hefur staðfestu, kennitölu, netfang, virðisaukaskattnúmer, þeirri opinberu skrá sem fyrirtækið er skráð hjá og leyfisveitandi þar sem það á við.