Einungis einn stjórnarmaður í fasteignafélaginu Reginn gefur kost á sér til endurkjörs. Það er Benedikt K. Kristjánsson. Þeir sem koma nýir í stjórn eru Jón Steindór Valdimarsson, Bryndís Hrafnkelsdóttir, Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir og Tómas Kristjánsson. Fimm stjórnarmenn gefa kost á sér í fimm stjórnarsæti og er því sjálfkjörið. Framboðsfrestur rann út í gær.

Þeir sem hverfa úr stjórninni eru Elín Jónsdóttir stjórnarformaður, Guðríður Friðriksdóttir, Stanley Pálsson og Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir.Hjördís verður þó í varastjórn.

Fasteignafélagið Reginn er eina fasteignafélagið sem skráð er á hlutabréfamarkað í Kauphöll Íslands. Um nokkurt skeið hefur staðið til að skrá fasteignafélagið Reiti.