Fasteignafélag Íslands ehf., eigandi verslunarmiðstöðvarinnar Smáralindar, hefur ákveðið að gefa fjárfestum sem áhuga hafa á að kaupa verslunarmiðstöðina, kost á því að kaupa einnig nærliggjandi lóðir í eigu félagsins.

Lóðirnar eru sunnan Smáralindar við Hagasmára og Hæðasmára. Þessar lóðir verða hvorki seldar sérstaklega sem heild né heldur stakar, heldur er ætlunin að gefa kaupanda verslunarmiðstöðvarinnar tækifæri á að eignast þær jafnhliða kaupum á Smáralindinni segir í fréttatilkynningu.

Sala Smáralindarinnar var fyrst auglýst 27. apríl. Þann dag hófst formlegt söluferli sem Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast í umboði eiganda.