Auglýsingaframleiðslufyrirtækið Þeir tveir og hugbúnaðar- og markmiðlunarfyrirtækið Prax hafa sameinast í nýtt fyrirtæki sem heitir Kapital, að því er fram kemur í frétt frá fyrirtækinu.

?Markmiðið með sameiningunni er að taka það besta úr báðum fyrirtækjum og bjóða upp á breiðari og betri þjónustu. Kapital er enn betur í stakk búið til að aðstoða þig við að koma þér og þínum á framfæri og nýta til þess alla þá fjölbreyttu flóru miðla sem í boði er, hvort sem það er sjónvarp, útvarp, internetið, eða DVD.

Með þessari sameiningu öðlast Kapital líka sjaldgæfa sérhæfingu í að sameina þessa miðla og gera sem mest úr þeim, hvort sem að það er með margmiðlunarsamsetningum eða fjölþættri vinnslu,? segir í fréttinni.