Eirberg hefur opnað nýja verslun í Kringlunni þar sem áhersla er lögð á virkan lífsstíl og vistvænan lífsstíl.

Eirberg selur heilbrigðis- og lífsstílstengdar vörur líkt og þjálfunar- og æfingarvörur og lofthreinsi og rakatæki svo fátt eitt sé nefnt.

Verslunin á Stórhöfða verður áfram starfandi en þar verður áfram lögð áhersla á heilsueflingu og aukin lífsgæði.

Stór hluti starfsemi Eirbergs er einnig að þjónusta heilbrigðisstofnanir og starfsmenn þeirra.