Í Viðskiptaþættinum í dag á Útvarpi Sögu (99,4) verður rætt við Eirík S. Jóhannsson forstjóra Og Vodafone. Þriggja mánaða uppgjör félagsins liggur fyrir núna en það var umfram væntingar markaðarins. Einnig verður rætt við Gunnar Baldvinsson framkvæmdastjóra Almenna lífeyrissjóðsins sem heldur upp á 40 ára afmæli sitt í dag.

Í lok þáttarins mun Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri eldsneytis hjá Olíufélaginu, setja okkur inn í stöðu og horfur á olíumörkuðum.