Eiríkur Steingrímsson, prófessor í sameindalíffræði við Læknadeild Háskóla Íslands, hefur verið kjörinn formaður stjórnar European Molecular Biology Laboratory (EMBL), samevrópskrar stofnunar á sviði sameindalíffræði. Hann er fyrstur Íslendinga til þess að gegna því embætti.

Eiríkur lauk doktorsprófi frá University of California, Los Angeles (UCLA) árið 1992 og starfaði sem nýdoktor við National Cancer Institute í Frederick, Maryland í Bandaríkjunum þar til hann var ráðinn sem rannsóknaprófessor við Háskóla Íslands árið 1997.

Eiríkur hefur helgað sig rannsóknum á því hvernig sérhæfingu og starfsemi frumna er stjórnað, með sérstaka áherslu a stjórnun umritunar í litfrumum og sortuæxlum. Hann stýrir nú rannsóknarhópi við Lífvísindasetur Háskóla Íslands og hefur átt í virku samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknahópa.

Rannsóknir hans hafa meðal annars hlotið öndvegisstyrk frá Rannís, stærsta rannsóknasjóði Íslands. Eiríkur hefur enn fremur stofnað sprotafyrirtækið Akthelia ásamt samstarfsfólki. Það vinnur að þróun lyfja sem örva framleiðslu bakteríudrepandi peptíða í yfirborðsfrumum líkamans og koma þannig í veg fyrir sýkingar.

Auk starfa innan EMBL er Eiríkur varaformaður stjórnar European Molecular Biology Conference, EMBC, og þá er hann einnig félagi í EMBO, akademíu evrópskra sameindalíffræðinga.

„Komandi ár verður í sannarlega spennandi og mikil áskorun fyrir stjórnina. Við erum að undirbúa metnaðarfulla fimm ára stefnumörkun sem ýtt verður úr vör árið 2021 og það er sannur heiður að hafa verið kjörinn formaður stjórnar EMBL á þessum merku tímamótum í sögu stofnunarinnar,“ segir Eiríkur.

Aðild að EMBL eiga 27 Evrópulönd en markmið stofnunarinnar er m.a. að vinna að framgangi rannsókna í sameindalíffræði í álfunni, þróun nýrrar tækni í greininni, þjálfun ungra vísindamanna og uppbyggingu gagnabanka sem nýtast öllum aðildarlöndum. Stofnunin rekur sex rannsóknastöðvar í Evrópu og Ísland hefur átt aðild að henni frá árinu 2005.

Stjórn EMBL markar stefnu fyrir stofnunina í vísindum, tækni og stjórnsýslulegum efnum og á hvert aðildarland einn fulltrúa í henni. Eiríkur hefur setið í stjórn EMBL fyrir hönd Íslands undanfarin ár, þar af sem varaformaður frá árinu 2016, en formannstíð hans hjá hefst þann 1. janúar 2020.