Eiríkur Elís Þorláksson hefur verið ráðinn forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík. Eiríkur lauk fullnaðarprófi í lögfræði árið 2001 og meistaranámi frá King´s College í London árið 2008. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Eiríkur Elís hefur starfað hjá HR síðan 2012, fyrst sem lektor og sem dósent frá árinu 2017. Hann hefur kennt bæði í grunn- og meistaranámi, einkum greinar á sviði réttarfars og fjármunaréttar. Ennfremur hefur hann sinnt rannsóknum á þeim sviðum og nýverið kom út bók eftir hann um alþjóðlegan einkamálarétt. Þá hefur Eiríkur Elís setið í nefndum og stjórnum innan og utan háskólans. Hann hefur gegnt starfi deildarforseta tímabundið frá 1. mars síðastliðnum.