EJS hefur tekið til sölu GSM síma. Samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu eru símarnir með Windows Mobile stýrikerfi. Notendur símanna geta þannig t.d. sent og sótt tölvupóst og haldið utan um netfanga- og símanúmeralista sem er samræmdur milli síma og tölvu. Auk þess veitir Windows Mobile stýrikerfið aðgang að skoðun og vinnslu á skjölum úr öllum Microsoft Office forritum.

Framleiðandi Glofiish símans er kínverska fyrirtækið Eten, sem er jafnframt einn stærsti framleiðandi lófatölva í Kína.