Félag atvinnurekenda segir Innanríkisráðuneytið ekki hafa brugðist við tilmælum Samkeppniseftirlitsins frá því í október 2015 vegna samkeppnishindrana við úthlutun afgreiðslutíma til flugfélaga á Keflavíkurflugvelli.

Segir félagið það vera þrátt fyrir að í tilmælunum hafi verið mælst til þess að gripið yrði til tafarlausra aðgerða, og leggur það því fyrir ráðherra samgöngumála spurningar um hvað hafi verið gert í málinu.

Wow air kvartaði

Í framhaldi af kvörtun Wow air komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að úthlutunin raskaði samkeppni þannig að það væri til tjóns fyrir viðskiptavini, keppinauta í áætlunarflugi og samfélagið allt. Samkvæmt tilmælum eftirlitsins var því beint til ráðherrans að við aðgerðir verði hagsmunum almennings af virkri samkeppni í áætlunarflugi í forgangi.

Félag atvinnurekenda skrifaði innanríkisráðuneytinu fyrst vegna málsins í febrúar 2016 en eftir engin viðbrögð var bréfið ítrekað í júní 2016. Barst þá loks svar í júlí þar sem greint var frá því að málið væri í vinnslu og niðurstaðna að vænta haustið 2016.

„Félagið telur ekki boðlegt að einu og hálfu ári eftir að tilmæli Samkeppniseftirlitsins voru gefin út, hafi ráðherra ekki brugðizt við þeim með neinum hætti,“ segir í bréfi FA til ráðuneytisins í dag.

„Það getur að minnsta kosti ekki flokkazt undir „tafarlausar aðgerðir“. Í ljósi þess að ekkert hefur frétzt af niðurstöðu vinnunnar leyfir FA sér að ítreka spurningar sínar til ráðherra og óskar svars hið fyrsta.“

Þær spurningar sem ráðuneytið fékk nú í þriðja sinn eru svohljóðandi:

  • Hefur ráðherra beitt sér fyrir aðgerðum til að draga úr samkeppnishindrunum við úthlutun afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli
  • Ef svo er, til hvaða aðgerða?
  • Ef ekki, hvers vegna ekki?