Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,23% í dag og var velta á hlutabréfamarkaði í minna móti og nam 163,7 milljónum króna. Ekkert skráð félag hækkaði í verði, en gengi bréfa Icelandair lækkaði um 0,45%, Fjarskipta um 0,44% og Haga um 0,39%.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,04% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,05% og sá óverðtryggði um 0,02%. Velta á skuldabréfamarkaði nam 7,4 milljörðum króna og þar af námu viðskipti með óverðtryggð bréf tæpum 5,2 milljörðum.