Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,18% í dag. Gengi bréfa Icelandair hækkaði um 0,27%, en gengi annarra félaga í Úrvalsvísitölunni annað hvort lækkaði eða stóð í stað. Bréf Eimskips lækkuðu um 1,09%, BankNordik um 0,93% og Regins um 0,74%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 479,8 milljónum króna í dag.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,05% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,03%, en sá óverðtryggði hækkaði um 0,28%. Velta á skuldabréfamarkaði nam 3,5 milljörðum króna og var nær öll í viðskiptum með óverðtryggð bréf.