Greiðslur af skuldabréfaflokkum gefnum út af Landic Property verða ekki verða greiddar í febrúar og mars 2009.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landic Property en félagið mun senda frá sér upplýsingar um framgang viðræðnanna fyrir lok febrúar.

Eins og áður hefur komið fram vinnur Landic Property að fjárhagslegri endurskipulagningu á rekstri félagsins.

Í tengslum við endurskipulagninguna eiga sér stað viðræður við helstu kröfuhafa félagsins, meðal annars helstu eigendur skuldabréfaflokkanna STOD 03 1, STOD 06 1, STOD 06 2 og STOD 09 0306 þar sem rætt er um skilmálabreytingu á skuldabréfaflokkunum.