Eiríkur Guðnason, einn þriggja bankastjóra Seðlabankans, sagði í samtali við Viðskiptablaðið í morgun að ekki sé búið að ákveða að hækka stýrivexti, eins og alþjóðlega fréttaveitan Market News International greindi frá í morgun.

"Það er ekki búið að ákveða eitt eða neitt," sagði Eiríkur. Hann bætti við að útlit væri fyrir að auka þyrfti aðhald og að sú þróun sem orðið hefur síðan bankinn birti síðustu verðbólguspá sína hafi ekki orðið til þess að fegra myndina.

Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er 18. maí og búast flestir sérfræðingar við að bankinn muni tilkynna um hækkun stýrivaxta þá, en vextirnir standa nú í 11,5%.

Verðbólga á ársgrundvelli er 5,5%, miðað við síðustu tölur Hagstofu Íslands frá því í apríl, en verðbólgumarkmið bankans er 2,5%.