„Það er verið að skoða þetta. Ekki liggur fyrir hvenær því lýkur,“ svarar Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri alþjóðasviðs Seðlabanka Íslands, þegar hann er spurður hvað líði áformum um að auka gjaldeyrisforða bankans.
Forsætisráðherra, utanríkisráðherra og viðskiptaráðherra gáfu ekki kost á viðtali um mögulegar lántökur ríkissjóðs til að styrkja gjaldeyrisforðann, þegar Viðskiptablaðið leitaði eftir því í gær og í fyrradag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra tjáði sig þó um þessi mál í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær, eins og sjá má í meðfylgjandi frétt .
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra sagði í samtali við Viðskiptablaðið að þessir hlutir yrðu að hafa sinn gang. Menn gætu þó treyst því að Seðlabankinn eins og ríkisstjórnin myndu reyna eins og mögulegt væri að vera „búin undir þá hluti sem þyrfti að gera á hverjum tíma,“ eins og hann orðaði það.
_____________________________________
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum. Þeir áskrifendur sem ekki hafa sótt um aðgangsorð til að lesa blaðið á vefnum geta gert það hér .