Framsóknarmenn styðja ekki frumvarp fjármálaráðherra um stofnun eignaumsýslufélags og fram komnar breytingartillögur stjórnarflokkanna. Þar með er ekki meirihluti fyrir málinu á Alþingi.
Birkir J. Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks, segist hafa lýst því yfir á vettvangi efnahags- og skattanefndar þingsins að framsóknarmenn styddu ekki málið. Sjálfstæðismenn styðja það ekki heldur.
Frumvarpið hefur verið afgreitt úr nefnd og styðja þingmenn Samfylkingar og VG afgreiðslu þess með nokkrum breytingartillögum. Samkvæmt dagskrá þingsins er gert ráð fyrir annarri umræðu um málið fljótlega.
Vilja víðtækara eignarhald
„Við viljum ekki sjá málið í þeim búningi sem það er í núna," segir Birkir Jón í samtali við Viðskiptablaðið. Hann segir að vinna hefði þurft málið betur og með öðrum hætti. Framsóknarmenn hefðu til að mynda viljað víðtækara eignarhald á félaginu, þannig að það væri ekki bara í eigu ríkisins.
„Ég lýsti því yfir á vettvangi nefndarinnar að við styddum ekki málið eins og það lítur út og það hefur ekki breyst."
Með frumvarpinu er lagt til að opinberu hlutafélagi verði komið á fót tímabundið í þeim tilgangi að kaupa þjóðhagslega mikilvæg atvinnufyrirtæki sem vegna rekstrarerfiðleika eru komin í eigu fjármálastofnana að hluta til eða öllu leyti.
Félaginu er ætlað að koma hlutaðeigandi fyrirtæki í rekstrarhæft ástand og selja að því búnu eignarhlut sinn í því um leið og markaðsaðstæður leyfa.
Frumvarpið byggist á tillögum í fyrstu starfsáætlun samræmingarnefndar um endurreisn bankakerfisins sem kynnt var af Svíanum Mats Josefson.