Í ákæru sérstaks saksóknara gegn starfsmönnum Húsasmiðjunnar, Byko og Úlfsins er greint frá tölvupóstsamskiptum og símtölum manna á milli þar sem upplýst er um verð á yfir hundrað vörutegundum.

Í einum af þessum tölvupóstum áframsendir starfsmaður Byko verðupplýsingar frá Úlfinum til annars starfsmanns Byko. Þar segir hann enn fremur að „Ekki fengust uppgefin verð frá Múrbúðinni“.

Alls eru þrettán einstaklingar ákærðir vegna málsins.