Samkeppniseftirlitið hefur haft til rannsóknar yfirtöku Almenna leigufélagsins (GAMMA) á BK eignum ehf. Starfsemi beggja félaga felst í fjárfestingum og útleigu á íbúðum á almennum leigumarkaði. Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins er sú að ekki séu forsendur til íhlutunar á samrunann á grundvelli samrunaákvæði samkeppnislaga. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Þrátt fyrir framangreinda niðurstöðu telur Samkeppniseftirlitið rétt að vekja athygli á auknu vægi sérhæfðra leigufélaga á markaði fyrir útleigu á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins er leitt lítur að því að fasteignafélög eigi allt að 40% íbúðarhúsnæðis í almennri útleigu á höfuðborgarsvæðinu, en aðrar eignir eru í eigu einstaklinga og minni leigufélaga. Á Suðurnesjum eiga hins fasteignafélög hins vegar á milli 70-80% íbúðarhúsnæðis í almennri eigu.

„Að mati Samkeppniseftirlitsins er full ástæða þess að gefa þessari þróun sérstakan gaum. Þótt líklegt sé að lítið framboð á leiguhúsnæði og stóraukin eftirspurn ráði miklu um hækkandi fasteigna- og leiguverð nú um stundir, getur aukin samþjöppun á markaðnum leitt til minnkandi samkeppni til lengri tíma, leigutökum til tjóns.

Í ákvörðuninni er tekið fram að frekari samþjöppun í þessari atvinnustarfsemi muni að líkindum kalla á ítarlegar rannsóknir af hálfu Samkeppniseftirlitsins. Full ástæða er hins vegar til þess fyrir önnur stjórnvöld sem að þessu koma að meta stöðuna og huga að stjórntækjum á sínum vettvangi,“ segir enn fremur í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.