Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að ekki verði farið í frekari útboð íbúðabréfa á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og mun hluti áætlaðrar útgáfu íbúðabréfa verða færður til annars ársfjórðungs.

Þetta kemur fram í tilkynningu Íbúðalánasjóðs til Kauphallarinnar en þann 19. desember s.l. birti Íbúðalánasjóður áætlanir varðandi útlán, útgáfu og greiðslur sjóðsins fyrir árið 2009. Þar gerði sjóðurinn ráð fyrir að gefa út íbúðabréf að upphæð 8-10 milljarða á fyrsta ársfjórðungi ársins, en samtals nemur heildarútgáfa fjórðungsins 5,87 milljörðum króna að nafnverði.

Í tilkynningunni kemur fram að útlán sjóðsins hafa verið minni á fyrsta ársfjórðungi en áður var gert ráð fyrir og hefur lausafjárstaða sjóðsins verið góð á tímabilinu.

Endurskoðaðar áætlanir sjóðsins verða birtar í lok sextándu viku ársins 2009.