Félag atvinnurekenda bendir á að núverandi ríkisstjórn hefur ekki sett sér sérstaka stefnu um einföldun regluverks atvinnulífsins og ekki séu ákvæði um slíkt í stjórnarsáttmálanum líkt og hjá fyrri ríkisstjórn.

Hefur félagið sent Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra bréf þar sem það gerir það að tillögu sinni að mörkuð verði ný og skilvirkari stefna um einföldun regluverksins.

Vísar félagið til viðtals við Bjarna í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag, þar sem hann nefndi að undanfarin ár hefði verið unnið eftir þeirri reglu að ekki komi inn ný íþyngjandi lög eða reglur án þess að sambærileg íþyngjandi regla verði afnumin.

En eins og nýleg skýrsla ráðgjafanefndar um opinberar eftirlitsreglur sýnir fram á, þá náðist það markmið alls ekki á síðasta kjörtímabili. Þvert á móti voru áhrifin í öfuga átt og þyngdist reglubyrði atvinnulífsins.

Segir þar að meðal ástæðnanna sé sú tilhneiging ráðuneytanna sé að bæta íþyngjandi kvöðum við frumvörp, sem sett eru til innleiðingar á EES reglum. Nefnir FA að nýjasta og eitt skýrasta dæmið sé drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um rafrettur.

Félagið leggur til að ríkisstjórnin setji sér stefnu um þessi mál sem innihaldi eftirfarandi þætti:

  • Gera þarf þá kröfu til ráðuneytanna að þau birti með lagafrumvörpum mat á kostnaði og ávinningi fyrir atvinnulífið, þegar það á við. Hér telur FA að komi sterklega til greina að hrinda í framkvæmt tillögum Samkeppniseftirlitsins og Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, um að íslenzk stjórnvöld taki upp svokallað samkeppnismat, aðferðafræði sem þróuð hefur verið á vettvangi OECD og gefið góða raun til að létta reglubyrði atvinnulífsins og efla samkeppni í ýmsum aðildarríkjum.
  • Samkeppnismatinu mætti jafnframt beita til að fara yfir gildandi löggjöf, greina samkeppnishömlur og íþyngjandi kvaðir fyrir atvinnulífið og gera úrbætur.
  • Setja ætti skýra reglu um að engar nýjar íþyngjandi kvaðir verði lagðar á atvinnulífið nema í staðinn falli brott jafnveigamiklar kvaðir og gera að þessu sinni árlega mælingu á því hvort henni hafi verið fylgt.
  • Gera á þá kröfu til ráðuneytanna að þau tilgreini nákvæmlega í greinargerð með frumvörpum til innleiðingar EES-reglna 1) hvaða ákvæði eru til innleiðingar á Evrópureglunum, 2) hvaða ákvæði eru umfram það sem nauðsynlegt er vegna innleiðingar Evrópureglna og hver sé rökstuðningurinn fyrir að ganga lengra en þær kveða á um og 3) hvaða svigrúm er gefið í viðkomandi tilskipun eða reglugerð til minna íþyngjandi innleiðingar.