Þetta er ekki rétti tíminn til þess að kaupa nýjan iPhone frá Apple. Í þarnæstu viku mun tölvurisinn nefnilega kynna nýjustu útgáfu snjallsímans og herma fregnir að menn skuli vænta tveggja gerða hans frekar en einnar. Önnur verði með svipuðu sniði og verið hefur, en hin nokkru stærri.

Ýmsir orðasveimar aðrir eru uppi um hvers má vænta í iPhone 6, en meðal þeirra helstu er að skjáupplausnin verði hærri og myndgæðin enn betri, en jafnframt að skjárinn verði úr safírgleri, sem er svo hart að fátt nema demantur og iðnaðarsandpappír á að geta rispað hann. Margs konar betrumbætur verður að finna í innvolsinu, þar á meðal enn betri myndavél.

Að útliti er sagt að iPhone 6 verði þynnri en fyrirrennararnir og með ávalar brúnir. Allt kemur það í ljós fyrr en varir, en myndin hér að ofan er sögð sýna þennan nýja iPhone 6.