Velta á fasteignamarkaði dróst saman um 31% í vikunni sem leið og hafði í vikunni á undan dregist saman nokkuð eða um 17% milli vikna samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Í vikunni sem leið nam veltan tæplega 1,3 milljörðum króna en í fyrri viku nam veltan um 1,9 milljörðum króna.  Velta á fasteignmarkaði hefur ekki verið minni á einni viku í yfir 4 ár en um miðjan apríl 2004 var velta á fasteignamarkaði einnig um 1,3 milljarðar.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 81% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið voru 47 en voru 57 í vikunni þar áður. Þinglýstir samningar eru að meðaltali 74 á viku frá áramótun.

Meðalvelta á hvern samning tæpar 28 milljónir króna og minnkar talsvert frá vikunni á undan þegar meðalvelta á hvern samning um 33 milljónir. Meðaltal á hvern samning frá áramótum er 33 milljónir króna.