Fundi strandríkjanna í makríldeilunni lauk í kvöld án samkomulags.  Með fundinum stóð til að reyna til þrautar að ná samkomulagi um skiptingu veiðiheimilda í makríl. „Fullreynt er að samningur náist á þeim grundvelli sem lá fyrir milli Íslands og ESB í haust,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra.

Ísland hefur tekið þátt í viðræðum strandríkja um skiptingu makrílstofnsins síðan árið 2010. Ekki hefur tekist á þessum árum að ná samkomulagi um stjórnun og skiptingu veiðanna milli strandríkjanna sem eru auk Íslands - Noregur, Færeyjar og ESB.

„Það er mikil synd að ekki hafi tekist að ljúka samningi, tækifærið var svo sannarlega til staðar eftir mun hærri ráðgjöf Alþjóða hafrannsóknaráðsins nú í haust. Hægt hefði verið að semja um veiðar innan marka ráðgjafar án þess að nokkurt ríki hefði þurft að draga úr veiðum sínum,“ segir Sigurður Ingi.

Í haust lá fyrir samkomulag milli Íslands og ESB um hvernig leysa mætti deiluna. „Grunnur þess samkomulags byggðist á sjálfbærum veiðum og tiltekinni hlutdeild Íslands. Evrópusambandið tók að sér að fylgja málinu eftir gagnvart Noregi. Norðmenn hafa því miður komið í veg fyrir að þetta samkomulag næði fram að ganga ekki síst með ósveigjanlegri og órökstuddri kröfu um veiðar langt umfram vísindalega ráðgjöf,“ segir ráðherra.

Farið verður yfir stöðuna á næstu dögum og undirbúin ákvörðun um heildarafla íslenskra skipa í makríl á komandi vertíð. „Það er ljóst að viðræðum um stjórn makrílveiða fyrir 2014  er nú lokið,“ segir Sigurður Ingi. „Við munum áfram leitast við að stuðla að lausn sem byggir á vísindalegum grunni, sjálfbærri nýtingu og sanngjörnum hluta allra strandríkjanna,“ bætir ráðherrann við. Hann hvetur enn fremur strandríki til að sýna ábyrgð þegar komi að ákvörðun um veiðar á makríl í ár.