Ekki er rétt að Iceland Express hafi ekki átt í neinum vandræðum með að sinna Ameríkuflugi sínu til Boston og New York á sínum tíma. Samkeppniseftirlitið vekur athygli á því að föstudag að Skarphéðinn Berg Steinarsson v, fyrrverandi forstjóri Iceland Express, hafi furðað sig á málarekstri Wow air gegn Isavia. Wow Air hefur undanfarna mánuði leitað eftir flugafgreiðslutímum á Keflavíkurflugvelli, á tilteknum tímabilum dagsins, í því skyni að hefja Ameríkuflug í samkeppni við Icelandair.

Voru með kvörtun frá Iceland Express

Samkeppniseftirlitið segir að þvert á móti hafi hafi Samkeppniseftirlitið haft á sama tíma haft til meðferðar kvörtun frá Iceland Express þar sem félagið kvartaði undan alvarlegum samkeppnishindrunum sem stöfuðu af úthlutun flugafgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli.

Samkeppniseftirlitið segir:

„Í júní 2012, þegar Skarphéðinn var framkvæmdastjóri Iceland Express, barst Samkeppniseftirlitinu bréf frá félaginu þar sem fram kemur það mat að fyrirkomulag Isavia við úthlutun afgreiðslutíma hafi haft veruleg útilokunaráhrif fyrir Iceland Express og viðhéldi yfirburðarstöðu Icelandair í áætlunarflugi til og frá Íslandi. Einnig er vísað til þess að Isavia hafi með fyrirkomulaginu veitt Icelandair samkeppnisforskot og „einkarétt“ á bestu afgreiðslutímum á flugvellinum. Hafi Iceland Express m.a. þurft að hætta áætlunarflugi til Bandaríkjanna sem það hafði starfrækt árin 2010 og 2011. Yfirlýsingar Skarphéðins Berg Steinarssonar um úthlutun Isavia á afgreiðlutímum eru því í ósamræmi við sjónarmið sem Iceland Express undir hans stjórn setti fram við Samkeppniseftirlitið um mitt ár 2012. Telur Samkeppniseftirlitið mikilvægt að opinber umræða um mikilvæg samkeppnismál fari fram á grundvelli réttra forsendna.“