Bjarni Benediktsson segir útséð um að Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn hefji samstarf, en hann gert forseta grein fyrir stöðu mála.

„Það er töluvert mikil gjá víða á milli manna en nú ætla ég að halda þessum samtölum áfram og sjá hvort það er grundvöllur til þess að hefja eiginlegar stjórnarmyndunarviðræður við aðra flokka,“ segir Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins í viðtali við RÚV .

„Og ég ætla bara að halda því til haga að ég er ekkert að hugsa ákveðið eitt umfram annað í því, en ella verð ég að segja þetta gott í bili og skila umboðinu, það getur verið veruleiki sem við bara horfumst í augu við.“

Áskoranir fylgja samstarfi við Bjarta framtíð og Viðreisn

Bjarni segir það ekki vera persónulegt metnaðarmál að vinna að ríkisstjórnarsamstarfi, kosningaúrslitin hafi boðið upp á frekar þrönga stöðu og að margir hafi verið fljótir að útiloka samstarf í ýmsar áttir.

„Maður er auðvitað í þessu til að vinna fyrir heildina og það þarf að vera hægt að mynda hér starfhæfa ríkisstjórn,“ segir Bjarni, sem segir ekki andstöðu í þingflokki Sjálfstæðismanna við samstarf við Bjarta framtíð og Viðreisn.

„Nei ég myndi ekki segja að það hafi verið andstaða, en við vissulega ræddum áskoranir sem gætu verið í því að við gerðum það.“

Bjarni sagði að samstarfið við Framsóknarflokkinn hafi verið gott og hann vilji halda góðu samstarfi við flokkinn áfram, en spurður út í mögulegt samstarf við Vinstri græna sagði hann:

„Já við höfum rætt saman nokkrum sinnum og ég tel að það sé orðið útséð með að hefja einhverjar viðræður á milli flokkanna.“