Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur lokið mati sínu á rekstrarhæfi Kvikmyndaskóla Íslands. Niðurstaða þess er að skólinn geti ekki uppfyllt skilyrði viðurkenningar um rekstrarhæfi. Ríkisendurskoðun tekur undir mat ráðuneytisins og telur auk þess rétt að ráðist verði í sérstaka úttekt á því hvernig farið hefur verið með framlag ríkisins til skólans. Í ljósi þessa er ekki unnt að ganga til samninga við Kvikmyndaskóla Íslands um hækkun á fjárframlögum til hans meðan svo mikil óvissa ríkir um reksturinn af því er fram kemur í tilkynningu mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Mennta- og menningarmálaráðherra fundaði með forsvarsmönnum Kvikmyndaskóla Íslands í gær og kynnti þeim fyrrgreinda afstöðu. Áréttaði ráðherra að skólinn hefði skuldbindingar gagnvart nemendum og óskaði eftir svörum um hvernig hann hygðist standa við þær.

Að loknum fundi með forsvarsmönnum skólans fundaði ráðherra með nemendum og kynnti þeim þá stöðu sem upp er komin.
Beðið er upplýsinga um áform skólans um næstu skref og þá með hvaða hætti ráðuneytið getur komið að þeim skrefum með hagsmuni nemendanna að leiðarljósi.