Icelandair hefur fellt niður flug til og frá Osló og Stokkhólmi og tvö flug til og frá Kaupmannahöfn í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair en þessum flugum hafði áður verið seinkað vegna áhrifa gossins í Eyjafjallajökli.

Flug til/frá Amsterdam og Frankfurt er samkvæmt áætlun, en í nokkurri seinkun, og sömuleiðis flug síðdegis til Boston og New York í Bandaríkjunum.

Fram kemur að um tvö þúsund farþegar eiga bókað flug með Icelandair á þeim flugum sem raskast hafa, staðsettir hér á landi og erlendis. Óljóst er hver þróun gossins verður og hvenær flug verður á ný með eðlilegum hætti. Farþegar eru hvattir til að fylgjast með fréttum, brottfarar- og komutímum á textavarpi og vefsvæðum, og á icelandair.is.

„Við erum að glíma við afleiðingar mjög sérstæðra náttúruhamfara og verðum að haga viðbrögðum okkar við nýjustu fréttir og spár hverju sinni", segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair í tilkynningunni.

„Þessar hamfarir hafa í dag haft áhrif á hundruð þúsunda flugfarþega um allan heim og þar á meðal okkar farþega. Þetta veldur þeim að sjálfsögðu miklum óþægindum, en allir sýna þessu skilning. Þeim sem missa af flugi í dag stendur til boða að fá endurgreitt, eða fresta för og breyta farseðlum sínum. Strandaglópum er eftir atvikum séð fyrir fæði og gistingu. Núna er öll áhersla lögð á að annast þarfir viðskiptavina og koma flugáætlun sem allra fyrst af stað á ný. Ef flug til Evrópu verður heimilað á morgun stefnum við að því að setja upp aukaflug til þess að koma strandaglópum til og frá landinu sem allra fyrst.“