Tekjur hestaleigunnar Eldhesta ehf. námu tæpum 67 milljónum króna á síðasta ári samkvæmt ársreikningi félagsins og hagnaðist félagið um 27,7 milljónir króna á árinu. Dróst hagnaðurinn lítillega saman á milli ára en ári fyrr nam hann 30 milljónum króna.

Tekjur jukust frá árinu 2013 um níu prósent. Munar þá þó nokkru um endurútreikning langtímalána og gengismunar en þær stærðir bættu samtals um 25 milljónum við fjármunatekjur félagsins árið 2013 samanborið við rúmar fimm milljónir sem þær gáfu af sér árið 2014.

Stærstu eigendur Eldhesta eru þeir Hróðmar og Sigurjón Bjarnasynir með 21,1% hlut hvor en á eftir þeim kemur Þorsteinn Hjartarson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, með 11,87% hlut.